Sjávarsetrið - Sandgerði

Kvöldspjall með Kristrúnu um daglega lífið

Kvöldspjall um daglega lífið í Sandgerði með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingar. Verið velkomin í Sjávarsetrið fimmtudaginn 16. október kl. 19:30.

Hvernig léttum við daglega lífið þitt?

Komdu með í opið samtal

* * *

Samfylkingin vinnur í þágu þjóðar og mótar stefnu með fólkinu í landinu. Þess vegna ferðast forysta Samfylkingar um landið nú í vetur og bankar á dyr með sjálfboðaliðum – til að spyrja: Hvernig léttum við lífið þitt? Hverju viltu breyta? Hvernig getur Samfylkingin aðstoðað?

„Daglega lífið“ er fyrsta forgangsmál í nýju málefnastarfi Samfylkingar. Nýtt útspil flokksins verður kynnt í mars eftir vinnu stýrihóps um daglega lífið með flokksfólki og almenningi um land allt. „Einföldun regluverks“ verður næsta forgangsmál og „Öryggi borgaranna“ þar á eftir.