Brauðgerðarhúsið í göngugötunni (áður Kristjánsbakarí)

Akureyri: Kaffispjall með Loga um daglega lífið

Kaffispjall um daglega lífið á Akureyri með Loga Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og þingmanni Samfylkingarinnar. Verið velkomin í Brauðgerðarhúsið við göngugötuna, Hafnarstræti (þar sem áður var Kristjánsbakarí) laugardaginn 22. nóvember kl. 15:45.

Hvernig léttum við daglega lífið þitt?

Komdu með í opið samtal

* * *

Samfylkingin vinnur í þágu þjóðar og mótar stefnu með fólkinu í landinu. Þess vegna ferðast forysta Samfylkingar um landið nú í vetur og bankar á dyr með sjálfboðaliðum – til að spyrja: Hvernig léttum við lífið þitt? Hverju viltu breyta? Hvernig getur Samfylkingin aðstoðað?

„Daglega lífið“ er fyrsta forgangsmál í nýju málefnastarfi Samfylkingar. Nýtt útspil flokksins verður kynnt í mars eftir vinnu stýrihóps um daglega lífið með flokksfólki og almenningi um land allt. „Einföldun regluverks“ verður næsta forgangsmál og „Öryggi borgaranna“ þar á eftir.

* * *

Hér má finna útspil Samfylkingar frá síðasta kjörtímabili:
Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum – https://bit.ly/3y7dFPm
Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum – http://bit.ly/3UE77zJ
Framkvæmdplan í húsnæðis- og kjaramálum – https://bit.ly/3AhIhzo
Og hér eru upplýsingar um næstu fundi: www.facebook.com/samfylkingin/events

* * *

Fyrri fundarstaðsetning var auglýst sem Axelsbakarí á Akureyri en fundurinn hefur verið færður í Brauðgerðarhúsið við göngugötuna í Hafnarstræti.