Hlíðarsmári 9 Kópavogi

Málefnafundur: Umhverfis og skipulagsmál V

Málefnastarf Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 16. maí er í fullum gangi. Á næstu vikum verða fundir í málefnahópum þar sem unnið verður áfram að móta stefnu og áherslur Samfylkingarinnar hér í Kópavogi. Allir fundirnir verða haldnir í húsnæði Samfylkingarinnar að Hlíðasmára 9.

18. nóvember kl. 20:00 Umhverfis- og skipulagsmál - Efri byggðir Kópavogs. Frummælandi: Bjarki Valberg, arkitekt hjá COWI Íslandi. Fyrrum starfsmaður Kópavogsbæjar og Kópavogsbúi.

Næsti fundur er 26. nóvember kl. 20:00, Menntamál - Málefni grunnskóla

Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunum og taka með sér gesti ef þeir vilja.