Umræðufundur um sveitarstjórnarkosningar

Samfylkingin í Borgarbyggð býður ykkur velkomin á umræðufund um komandi sveitarstjórnarkosningar sem fara fram í maí. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi, fimmtudaginn 15. janúar kl. 20.
Gestur okkar á fundinum verður Arna Lára Jónsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðar og núverandi þingmaður og formaður efnahags- og viðskiptanefndar.
Arna Lára hefur mikla reynslu og þekkingu á málefnum sveitarfélaga og verður því áhugavert að ræða við hana um komandi sveitarstjórnarkosningar.
Verið öll hjartanlega velkomin.