Hallveigarstígur 1 - 101 Reykjavík

Aðalfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík

Aðalfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík verður haldinn föstudaginn 20. febrúar kl. 17:00 í sal Samfylkingarinnar við Hallveigarstíg 1.

Dagskrá skv. lögum aðalfundar SffR

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Samþykkt ársreiknings
  3. Skýrsla skoðunarnefndar
  4. Lagabreytingar
  5. Ákvörðun ársgjalds
  6. Kjör formanns
  7. Kjör gjaldkera
  8. Kjör annarra stjórnarmanna
  9. Kjör varamanna
  10. Kjör þriggja manna skoðunarnefndar
  11. Kjör í nefndir a) uppstillingarnefnd b) í aðrar nefndir sem aðalfundur ákveður
  12. Önnur mál

Tillögur til lagabreytinga þurfa að hafa borist stjórn 2 vikum fyrir boðaðan aðalfund skv. 7. gr í netfangið samfylking@samfylking.is og skulu sendar út með öðrum fundargögnum minnst viku fyrir fund. Tillaga að lagabreytingum telst samþykkt fái hún 2/3 hluta greiddra atkvæða.

Á aðalfundi skal kjósa þriggja manna uppstillingarnefnd og einn til vara að tillögu fráfarandi stjórnar félagsins. Hlutverk nefndarinnar er að leggja fyrir aðalfund tillögur um frambjóðendur við kjör formanns, annarra stjórnarmanna, varamanna og skoðunarnefndarmanna. Tillögur uppstillingarnefndar skulu liggja fyrir á skrifstofu félagsins minnst viku fyrir aðalfund. Aðrar tillögur skulu berast skrifstofu félagsins minnst 2 sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund í netfangið samfylking@samfylking.is.

Sé áhugi á framboði er hægt að hafa samaband við skrifstofu, samfylking@samfylking.is sem kemur skilaboðum áfram á uppstillinganefnd.

Í uppstillinganefnd sitja Ellen Calmon, Sara Björg Sigurðardóttir og Gunnar Alexander Ólafsson.

Hér er að finna lög Samfylkingarfélagsins í Reykjavík