Félagsfundur

Boðað er til félagsfundar Samfylkingarinnar í Hafnarfirði laugardaginn 28. febrúar frá kl. 11:00 til 12:30 í Samfylkingarhúsinu í Hafnarfirði á Strandgötu 43.
Efni fundarins er afgreiðsla á tillögu uppstillingarnefndar um uppröðun á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í næstu sveitarstjórnarkosningum sem haldnar verða 16. maí nk.
Sérstakur gestur fundarins er Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar.