Mótaðu framtíð Mosfellsbæjar

Samfylkingarfélagið í Mosfellsbæ býður til súpufundar þar sem við komum saman og ræðum málefni bæjarins og framtíð Mosfellsbæjar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í vor.
- Laugardaginn 14. febrúar kl. 11:00
- Þverholt 3
Fundurinn er hluti af málefnastarfi Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ og er kjörið tækifæri til að taka þátt í umræðum, koma með hugmyndir og móta áherslur fyrir komandi kosningar.
Heit súpa í boði og notaleg stemning.
Verið öll hjartanlega velkomin – þitt framlag skiptir máli!
Samfylkingin í Mosfellsbæ