Mótum Akranes saman - opinn stjórnarfundur

Mótum Akranes saman! – Opinn stjórnarfundur hjá Samfylkingunni 🌹
Stjórn Samfylkingarfélagsins á Akranesi vill bjóða þér og öllum þeim sem láta sig bæjarfélagið okkar varða á opinn stjórnarfund hjá Samfylkingarfélagi Akraness næsta laugardag kl.11:00 - 13:00 í Stillholt 16-18
Framundan eru sveitarstjórnarkosningar í maí og við viljum hafa undirbúninginn eins opinn og lýðræðislegan og mögulegt er. Þetta er rétti tíminn til að koma þínum sjónarmiðum á framfæri, heyra hvað er á döfinni og taka þátt í spjalli um hvernig við gerum Akranes að enn betri stað að búa á.
Á dagskrá er m.a.:
Undirbúningur kosninga: Hvernig leggst vorið í okkur?
Málefnastarf: Hvaða málefni brenna á íbúum Akraness í dag?
Liðsheildin: Hvernig geta áhugasamir tekið þátt í starfinu framundan?
Það er heitt á könnunni og allir eru velkomnir, hvort sem þú hefur verið lengi í félaginu eða ert einfaldlega forvitinn að heyra meira.