Opinn fundur með Ölmu í Reykjanesbæ

Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, býður upp á opið, milliliðalaust samtal við fólkið í landinu. Með henni verða þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Víðir Reynisson.
Áhersla fundarins er á heilsugæsluna en styrking hennar sem hornsteins heilbrigðiskerfisins er eitt af áhersluatriðum heilbrigðisráðherra.
Fundurinn er partur af fundaröð um landið allt þar sem fylgt verður eftir fyrri fundum Samfylkingar um heilbrigðismál.
Við hlökkum til að ræða við notendur og veitendur þjónustunnar um hvernig heilsugæslan og heilbrigðisþjónustan almennt megi verða sem best til skemmri og lengri tíma litið.