Grand hótel - Háteigur

Samtal um daglegt líf 60+

Landsamband 60+ innan Samfylkingarinnar, í samstarfi við stýrihóp Samfylkingarinnar um daglegt líf, boðar til málþings fimmtudaginn 12. febrúar 2026 kl. 13:00.

📍 Staður: Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni
📍 Salur: Háteigur, 4. hæð
👥 Öll velkomnin á meðan húsrúm leyfir

Á málþinginu verður fjallað um málefni sem snerta daglegt líf fólks 60 ára og eldra, meðal annars fjárhag, réttindi, húsnæðismál, þjónustu sveitarfélaga, andlega líðan og hvernig gervigreind getur nýst 60+ í daglegu lífi.

Markmið málþingsins er að veita hagnýtar upplýsingar, skýr svör og skapa samtal um það sem skiptir raunverulega máli í daglegu lífi fólks 60+.

☕ Kaffi og veitingar í hléi
💬 Umræður og spurningar úr sal í lokin

Í umræðum málþingsins verður lögð áhersla á samtal og þátttöku gesta. Reynslu og sjónarmiðum sem þar koma fram verður safnað saman og þau nýtt áfram í starfi Samfylkingarinnar.

Athugið: Dagskrá er birt með fyrirvara um smávægilegar breytingar.

DAGSKRÁ

13:00–13:05
Setning málþings
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Landsambands 60+ innan Samfylkingarinnar

13:05–13:20
Ávarp
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra

13:20–13:40
Fjárhagur einstaklinga 60+
Kolbeinn Stefánsson, dósent við Háskóla Íslands

13:40–14:00
Samþætting ríkis og sveitarfélaga
Alma Möller, heilbrigðisráðherra

14:00–14:20
Húsnæðismál og samfélagsleg réttindi aldraðra
Finnbjörn Á. Hermannsson, forseti ASÍ

14:20–14:45
Kaffi og veitingar

14:45–15:05
Þjónusta sveitarfélaga við aldraða
og hvernig er að eldast í andanum
Berglind Magnúsdóttir, sálfræðingur og skrifstofustjóri öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg

15:05–15:25
Gervigreind og hvernig hún getur nýst fólki 60+
Ólafur Kristjánsson, tölvukennari hjá Netkynningu

15:25–15:50
Umræður og spurningar úr sal
Samtal um daglegt líf 60+