Strandgata 43

Umræðufundur: Leysum umferðarhnúta

Verið velkomin á opinn félagsfund Samfylkingarinnar í Hafnarfirði mánudaginn 16. febrúar klukkan 20:00 um samgöngumál í bænum.

Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni á höfuðborgarsvæðinu, mun koma á fundinn og fara yfir hugmyndir að úrlausnum á umferðarvanda á Hafnarfjarðarsvæðinu.

1. Þörf á stórfelldum endurbætum á Reykjanesbraut frá hringtorgi við N 1 og meðfram Kaplakrika. Fjallað verður um ýmsa valkosti í þeim efnum; jarðgöng/stokk/mislæg gatnamót.

2. Hugmyndir að úrlausnum á samgöngum á Strandgötunni inn á Suðurhöfn. En með tilkomu Tækniskóla og stórfelldrar nýrrar íbúðabyggðar á svæðinu má búast við mikilli umferðaraukningu.

3. Flóttamannaveg og hvernig hægt er að nýta þá leið til að greiða úr umferðinni.

4. Önnur mál.

Heitt á könnunni, hlökkum til að sjá ykkur sem flest.