Umræður með Landssambandi 60+

Samfylkingin á Akranesi efnir til mikilvægs fundar þar sem hornsteinn verður lagður að nýjum og kraftmiklum hóp innan raða flokksins: 60+ hópi Samfylkingarinnar á Akranesi.
Við fáum til okkar úrvalslið til að ræsa starfið með okkur:
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Landssamtaka 60+ í Samfylkingunni, mætir og miðlar af reynslu sinni af landsmálunum.
Helena og Heiða mæta sömuleiðis og taka þátt í spjallinu um framtíðina á Skaganum.
Á morgun laugardaginn 28. febrúar kl. 11:00, að Stillholti 16-18.
Af hverju ættir þú að mæta? Reynsla okkar félagsmanna sem eru 60 ára og eldri er dýrmætasta vopnið okkar í þessari kosningabaráttu. Við þurfum ykkar sýn á húsnæðismálin, heilbrigðisþjónustuna, skipulag bæjarins og hvernig við gerum Akranes að besta bænum á Íslandi til að eldast í.
Þetta verður óformlegur og skemmtilegur fundur. Við bjóðum upp á kaffi og nýbakað meðlæti, góðar umræður og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á málefnaskrána okkar.
Taktu endilega með þér félaga eða nágranna sem vill kynnast okkar starfi. Það er kraftur í reynslunni og saman vinnum við best!
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest,