Aðalfundur og kynning á framboðslista

Samfylkingin á Akureyri boðar til tveggja funda laugardaginn 14. mars n.k., annars vegar aðalfundar félagsins árið 2026 og hins vegar félagsfundar þar sem tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri 2026 verður borinn upp til samþykktar.
Sérstakur gestur fundanna verður Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og 1. þingmaður Norðausturkjördæmis.
Dagskráin er sem hér segir:
Kl. 10:00 Laugardagskaffi.
Kl. 11:15 Aðalfundur 2026. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Kl. 12:00 Félagsfundur. Á dagskrá er afgreiðsla á tillögu uppstillingarnefndar um uppröðun á lista Samfylkingarinnar á Akureyri til næstu bæjarstjórnarkosninga, sem haldnar verða 16. maí n.k.