Samfylkingarsalurinní Sunnuhlíð - Akureyri

Aðalfundur Sölku UJ á Akureyri

Aðalfundur Sölku – Ungs jafnaðarfólks á Akureyri fer fram föstudaginn 6. mars.

Fundurinn hefst kl. 18:00 í sal Samfylkingarinnar á Akureyri í Sunnuhlíð 12. Salurinn er aðgengilegur fólki í hjólastól.

Allt ungt fólk á aldrinum 15 til 35 ára sem aðhyllist jafnaðarstefnu og vill láta til sín taka velkomið. Félagar fá fundargögn í tölvupósti fyrir fundinn.

Meðal annars verður kosið um forseta og nýja stjórn auk þess sem stjórnmálaályktun verður tekin til afgreiðslu.

Tekið verður við framboðum til forseta og stjórnar fram að hádegi á fundardag.

Framboð og fyrirspurnir skal senda á netfangið forseti@uj.is.

Að fundi loknum liggur leiðin á Skor í pílu! 
- - - - - - -
Dagskrá:

1. Forseti Ungs jafnaðarfólks og fyrrv. forseti Sölku, Jóhannes Óli setur fundinn.
2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
3. Kosningar um samþykktir félagsins.
4. Fundarhlé.
5. Stjórnmálaályktun.
6. Kosið um forseta, stjórn og varastjórn.
7. Kosning skoðunarmanna reikninga.
8. Önnur mál.