Dóra Sif Tynes spjallar um Evrópumálin

Samfylkingarfélagið í Reykjavík hefur í vetur gengist fyrir spjalli um Ísland og Evrópusambandið, stuttum fundum um það bil mánaðarlega með einum gesti eða tveimur.
Næsti fundur verður núna á miðvikudaginn, 25. mars, frá kl. 17 til um 18.30, á Hallveigarstíg 1, og er gestur okkar þá Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti. Við spjöllum um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu, og ekki síður um það sem tekur við ef niðurstaðan er jákvæð, aðildarviðræðurnar, sérstaka íslenska hagsmuni og hugsanlegar sérlausnir.
Þetta er síðasti fundur fyrir páska og sveitarstjórnarkosningar um miðjan maí ‒ en áður í vetur hafa spjallað við okkur Magnús Árni Skjöld, formaður Evrópuhreyfingarinnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Dagur B. Eggertsson, alþingismaður, Finnbogi Hermannsson forseti Alþýðusambandsins, Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, og nú síðast Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra.
Allir félagar velkomnir ‒ og takið með ykkur gesti!