Félagsfundur - framboðslisti í Árborg kynntur

Boðað er til félagsfundar Samfylkingarinnar í Árborg miðvikudaginn 11. mars kl. 17:00 í Tryggvaskála.
Efni fundarins er afgreiðsla á tillögu á lista Samfylkingarinnar og óháðra í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem haldnar verða 16. maí nk.
Sérstakur gestur fundarins er Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar.