Leikhúsið - Austurmörk 23, Hveragerði

Gerum góðan bæ betri - hugarflugsfundur

Það er verið að undirbúa framboð Samfylkingarinnar og óflokksbundinna til sveitarstjórnarkosninganna 16. maí næstkomandi.

Af því tilefni verður efnt til opins hugarflugsfundar í leikshúsinu, Austurmörk 23, mánudaginn 2. mars kl. 20:00. 

Afrakstur fundarins verður nýttur í stefnumótun framboðsins og eru allir Hvergerðingar velkomnir til að taka þátt í hugarfluginu.