Leikfélagið - Austurmörk 23

Kynning á framboðslista í Hveragerði

Samfylkingin og óflokksbundnir (X-S) bjóða nú fram í Hveragerði til sveitarstjórnarkosninganna 16. maí nk.

Framboðslistinn verður kynntur á opnum kynningarfundi í húsi leikfélagsins, Austurmörk 23, laugardaginn 14. mars nk. kl. 14:00.

Húsið opnar kl. 13:30 og eru allir velkomnir.

Auk kynningar á listanum verður vöfflukaffi í boði og tónlistarsnillingar úr Hveragerði sjá um lifandi tónlist.

Í starfinu framundan hjá S-listanum verður lögð áhersla á að fólk með ólíkar skoðanir og ólíkan bakgrunn geti fundið sér farveg og staðið saman með félagshyggju og jafnaðarstefnu að leiðarljósi.