Reykjavíkurþing Samfylkingarinnar 2026

Reykjavíkurþing Samfylkingarinnar 2026 verður haldið laugardaginn 28. mars kl. 10:00. Á þinginu gefst gestum tækifæri til að hafa áhrif á stefnu Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Reykjavíkurþingið verður haldið í Hinu húsinu, Rafstöðvarvegi 7-9, 110 Reykjavík og hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 13:00. Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Samfylkingarfólk er hvatt til þess að fjölmenna á þingið, taka þátt í stefnumótuninni og eiga skemmtilega stund með jafnaðarmönnum í borginni. Þingið fer fram á með vinnustofusniði þar sem flokksfólk fær tækifæri til að koma hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri og hafa þannig áhrif. Afurð vinnustofunnar verður notuð við gerð stefnu flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar 2026.
Skráning hér: https://forms.gle/D2uVTbFVG9E1SrqX6
Dagskrá Reykjavíkurþings 2026:
10:00 - Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík setur fundinn
10:05 - Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir kynnir uppsetningu vinnustofunnar
10:15 - Vinna í hópum hefst
12:30 - Kynning á niðurstöðum
Sjáumst á laugardaginn 28. mars!