Þorsteinn Pálsson spjallar um Evrópumálin

Samfylkingarfélagið í Reykjavík gengst í vetur fyrir spjallfundum um Ísland og Evrópusambandið, og eru haldnir stuttir fundir mánaðarlega með einum gesti eða tveimur. Við bjóðum öll hjartanlega velkomin á þessa fundi.
Næsti fundur verður núna á miðvikudaginn, 4. mars, frá kl. 17 - 18.30, á Hallveigarstíg 1, og er gestur okkar þá Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi alþingsmaður og ráðherra.
Við spjöllum um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn, stöðuna gagnvart henni í stjórnmálaflokkunum og viðhorf í samfélaginu. Þorsteinn er öllum hnútum kunnugur í pólitíkinni og áhugamaður um Evrópuaðild í áratugi.
Næsti gestur okkar verður vonandi Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra en dagsetning er enn óákveðin.
Áður hafa spjallað við okkur Magnús Árni Skjöld, formaður Evrópuhreyfingarinnar, Þorgerður Katrín Gunnlaugsdóttir utanríkisráðherra, Dagur B. Eggertsson alþingismaður og Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ.
Þetta spjall um Evrópu er haft á lágu nótunum, fjarri kastljósi fjölmiðla, og er tilgangurinn bæði að fræðast og undirbúa sig fyrir atkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður.
Allir félagar velkomnir ‒ og takið með ykkur gesti!