Ungmennastefna Íslands: hvað viljum við?

Við ætlum að hittast og móta umsögn við ungmennastefnu Íslands sem verður send inn í nafni hreyfingarinnar. Við byrjum á því að fá kynningar til að kveikja hugmyndir og síðan tekur við hópavinna við umsögn.
Hvenær: Sunnudaginn 15. mars kl. 13
Hvar: Hallveigarstíg 1
Öll velkomin.
Veitingar í boði fyrir þátttakendur!
DAGSKRÁ:
13:10-13:30
SAMFÉS - Kynning um ungmennahús og félagsmiðstöðvar
13:30-13:50
Guðmundur Fylkisson - Segir frá sínum störfum í þágu ungmenna
13:50-14:00
Guðmundur Ari - markmið ungmennastefnu og vinnan framundan
14:00-14:25
Hópavinna - Fyrri umferð
14:25-14:35
Kaffipása
14:35-15:00
Hópavinna - Seinni umferð
15:00-15:30
Umræður og samantekt