Aðalfundur Samfylkingarinnar á Vestfjörðum

Aðalfundur Samfylkingarinnar á Vestfjörðum verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl 2026 á netinu kl 20:00-21:00.
Dagskrá aðalfundar
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins lagðir fram.
3. Skýrslur nefnda sem starfa á vegum félagsins.
4. Breytingar á lögum félagsins.
5. Kosning formanns.
6. Kosning stjórnar, fjögurra aðalmanna og tveggja til vara.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
8. Ákvörðun um félagsgjald.
9. Önnur mál
Stjórn óskar eftir framboðum í stjórn og fyrir skoðunarmenn reikninga. Sérstaklega er kosið til formanns en nýkjörin stjórn skiptir öðrum verkum á milli sín.
Allar nánari upplýsingar veitir varaformaður Samfylkingarinnar á Vestfjörðum Guðrún Anna Finnbogadóttir, gasfrise@gmail.com.