Fjölskylduhátíð í Sunnuhlíð

Við bjóðum fjölskyldur velkomnar í sumargleði Samfylkingarinnar á Akureyri í Sunnuhlíð á sumardaginn fyrsta.
Grillaðar pylsur, svali og gotterí.
Elsa María, sjónlistakennari og frambjóðandi býður upp á skapandi smiðjur fyrir börn á öllum aldri.
Andlitsmálning og gleði á pallinum.
Tilvalið að hefja sumargleðina hjá okkur í Sunnuhlíð og njóta svo fjölbreyttrar dagskrár Barnamenningarhátíðar í bænm í framhaldinu. Sjáumst með sól í sinni!