Menntamál í Hafnarfirði - hvað skiptir máli?

Samfylkingin býður íbúa Hafnarfjarðar velkomna á opinn fund um menntamál þriðjudaginn 21. apríl kl. 19:30 í sal Samfylkingarinnar Strandgötu 43.
Við viljum heyra frá ykkur, foreldrum, starfsfólki í skólum og öllum sem láta sig menntamál varða.
Hvað gengur vel?
Hvar eru áskoranirnar?
Hvað viljum við sjá þróast á næstu árum?
Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands verður frummælandi.
Fundarstjórn er í höndum Margrétar Lilju Pálsdóttur aðstoðarskólastjóra í Skarðshlíðarskóla.
Öll velkomin – hlökkum til að eiga samtalið með ykkur