Málefnafundur - Mótum framtíðina saman

Hvernig bæ viljum við búa í? Kosningarnar nálgast og við á lista Samfylkingarinnar viljum endilega heyra þínar áherslur og hugmyndir!
Sunnudaginn 19. apríl blásum við til opins málefnafundar á Ísafirði. Hér gefst íbúum tækifæri til að ræða stóru málin í okkar samfélagi við frambjóðendur á listanum.
Hvort sem þú brennur fyrir húsnæðismálum, uppbyggingu leikskóla, sterkari innviðum, íþróttastarfi eða bættri velferð – þá skiptir þín rödd máli. Við trúum því að bestu lausnirnar verði til í samtali við fólkið í bænum.
Heitt á könnunni, léttar veitingar og frábær stemning. Mættu og taktu þátt í að gera góðan bæ enn betri!
Öll hjartanlega velkomin, við hlökkum til að sjá ykkur