Opinn fundur um menntamál

Samfylkingin í Kópavogi boðar til opins fundar um grunn- og leikskólamál — þar sem við hlustum og ræðum það sem skiptir máli.
Við bjóðum kennurum, starfsfólki skóla og öllum áhugasömum í notalegt kaffispjall um hvernig megi styrkja skólakerfið í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi (mötuneyti)
20:00–22:00
Heitt á könnunni og sætur biti með
Enginn þekkir skólastarf betur en þau sem starfa í því á hverjum degi. Við viljum heyra ykkar sjónarmið, fá innsýn í áskoranir og ræða raunhæfar lausnir — með það að markmiði að bæta umgjörð skólamála í bænum
Við hlökkum til að sjá ykkur!