Opnun kosningaskrifstofu í Ísafjarðarbæ

Verið öll hjartanlega velkomin.
Það styttist óðum í kosningar og baráttan er að hefjast af fullum krafti! Því ber auðvitað að fagna og við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á formlega opnun kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ.
Kíktu við hjá okkur, fáðu þér hressingu og spjallaðu við frambjóðendur okkar í notalegri stemningu.
Við viljum endilega heyra í þér:
Hvernig getum við gert góðan bæ enn betri?
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eiga gott samtal um framtíðina okkar. Öll hjartanlega velkomin!
Setjum X við S