Eiðistorg, Seltjarnarnesi

Plokk og grill á Eiðistorgi

Ertu til í að gera bæinn okkar örlítið fegri og eiga góða stund með nágrönnunum?

Í tilefni af Stóra plokkdeginum ætlar framboð Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra að sameina krafta sína og snyrta svæðið í kringum Eiðistorg. Við ætlum að sýna umhverfinu okkar smá ást, fá ferskt loft í lungun og spjalla saman um leið og við týnum rusl.

Dagskráin er einföld:
Kl. 11:00: Mæting á Eiðistorg. Við útvegum poka (en hvetjum fólk til að koma með eigin hanska ef það á þá!).
Plokk: Við dreifum okkur um nágrennið og fegrum umhverfið.
Kl. 12:30 (ca.): Grillgleði! Við endum plokkið á því að skella pylsum á grillið og njóta samverunnar.

Þetta er frábært tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að láta gott af sér leiða, hitta frambjóðendur í afslöppuðu umhverfi og fá sér eina með öllu í lokin.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest með plokkhumörinn í lagi!