Raddir framtíðar - ungmennakvöld

Vilt þú hafa áhrif á það sem gerist í þínum bæ? Hvað finnst þér vanta í Ísafjarðarbæ?
Samfylkingin í Ísafjarðarbæ blæs til ungmennakvölds þar sem við viljum heyra í þér! Við trúum því að ungt fólk eigi að hafa skýra rödd í mótun sveitarfélagsins. Komdu og deildu þínum hugmyndum, pælingum og áhyggjuefnum með okkur í virkilega afslöppuðu og skemmtilegu umhverfi.
Hvað verður í boði?
Fríar pítsur! (Enginn á að ræða stefnumál á fastandi maga).
Kahoot! Við skellum í skemmtilega spurningakeppni og sjáum hver tekur bikarinn.
Gott spjall um framtíðina okkar hérna í bænum.
Hvenær: 17. apríl kl. 20:00
Hvar: Hafnarstræti 5, Ísafjörður
Taktu vinina með og kíktu við! Við hlökkum mikið til að sjá ykkur og heyra hvað brennur á ungu fólki í dag.