Stóri plokkdagurinn á Ísafirði

Nú er vor í lofti og snjó tekið að leysa!

Eitt af því sem gerir Ísafjarðarbæ að jafn frábærum stað og raun ber vitni er stórbrotin náttúra og fallegt umhverfi. Við í Samfylkingunni trúum því að fallegt umhverfi bæti umgengni, auki lífsgæði okkar allra og styrki samfélagsandann.

Því tökum við þátt í Stóra plokkdeginum og hvetjum alla bæjarbúa til að mæta, njóta útiverunnar og hjálpast að við að fegra nærumhverfið okkar. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að gera eitthvað gott fyrir bæinn okkar, fá sér frískt loft og eiga gott samtal við frambjóðendur og aðra bæjarbúa.