Aðalfundur hjá Samfylkingunni á Suðurlandi
Aðalfundur Samfylkingarinnar á Suðurlandi, verður haldinn fimmtudaginn 28. maí kl. 17 í sal Rauða krossins að Eyravegi 23 á Selfossi.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Fastir liðir aðalfundar skulu vera:
- Skýrsla stjórnar flutt og lögð fram til umræðu og samþykktar.
- Reikningar félagsins lagðir fram til umræðu og samþykktar.
- Skýrslur nefnda sem starfa á vegum félagsins.
- Breytingar á samþykktum félagsins bornar upp til umræðu og samþykktar.
- Kosning stjórnar, formanns og fjögurra aðalmanna og tveggja til vara.
- Kosning þriggja manna í skoðunarnefnd, skv. lögum Samfykingarinnar
- Ákvörðun félagsgjalds.
- Önnur mál.
Samfylkingin á Suðurlandi