Akureyri: Opinn fundur með Kristrúnu og frambjóðendum Samfylkingar

Opinn fundur með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingar, í Deiglunni við Kaupvangsstræti 23 á Akureyri, miðvikudaginn 6. maí kl. 17:00. Með á fundinum verða Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og 1. þingmaður Norðausturkjördæmis, Sindri Kristjánsson oddviti Samfylkingar á Akureyri og fleiri frambjóðendur.
Hvað brennur á þér fyrir sveitarstjórnarkosningar? Hvernig gerum við sveitarfélagið þitt betra? Og hvernig styrkjum við samvinnu ríkis og sveitarfélaga?
Opið samtal við ráðherra og frambjóðendur. Kaffi og kruðerí.
Sjáumst á Akureyri!