Eyrargata 24b

Fjallabyggð: Opinn fundur með Kristrúnu og frambjóðendum

Opinn fundur með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingar, í kosningamiðstöð Jafnaðarmanna, húsnæði Einingar-Iðju við Eyrargötu 24b á Siglufirði, miðvikudaginn 6. maí kl. 20:00. Með á fundinum verða Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og 1. þingmaður Norðausturkjördæmis, Jóhann K. Jóhannsson oddviti Jafnaðarmanna og óháðra í Fjallabyggð og fleiri frambjóðendur.

Hvað brennur á þér fyrir sveitarstjórnarkosningar? Hvernig gerum við sveitarfélagið þitt betra? Og hvernig styrkjum við samvinnu ríkis og sveitarfélaga?

Opið samtal við ráðherra og frambjóðendur. Kosningamiðstöðin opnuð samhliða. Kaffi og kruðerí.

Sjáumst í Fjallabyggð!