Framboðsfundur fyrir bæjarstjórnarkosningar á Akranesi

Framboðin sem bjóða fram í kosningum til bæjarstjórnar á Akranesi boða til sameiginlegs framboðsfundar þar sem oddvitar mæta, kynna sig og sín stefnumál og svara spurningum gesta úr sal.
Fundurinn mun fara fram í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi fimmtudagskvöldið 7.maí klukkan 20:00 og er öllum opinn.
Fundarstjóri verður Magnús Guðmundsson.