Nesskóli, Neskaupstað

Framboðsfundur í Nesskóla

Laugardaginn 9. maí kl. 12:00 verður haldinn opinn framboðsfundur í Nesskóla með fulltrúum allra framboða fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026.

Fundinum verður streymt á Austurfrétt. Gunnar Gunnarsson stýrir fundinum og mun spyrja frambjóðendur spjörunum úr. Í lok fundar verður opnað fyrir spurningar úr sal.

Við hvetjum öll áhugasöm til að mæta og taka þátt í umræðunni!