Gamli baukur, Hafnarstétt 9

Húsavík: Súpufundur með Kristrúnu og frambjóðendum Samfylkingar

Opinn fundur með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingar, á Gamla Bauk við Hafnarstétt 9 á Húsavík , miðvikudaginn 6. maí kl. 12:00. Með á fundinum verða Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og 1. þingmaður Norðausturkjördæmis, Kjartan Páll Þórarinsson oddviti Samfylkingar í Norðurþingi og fleiri frambjóðendur.

Hvað brennur á þér fyrir sveitarstjórnarkosningar? Hvernig gerum við sveitarfélagið þitt betra? Og hvernig styrkjum við samvinnu ríkis og sveitarfélaga?

Opið samtal við ráðherra og frambjóðendur. Súpa í boði og heitt á könnunni.

Sjáumst á Húsavík!