Ísafjörður: Opinn fundur með Kristrúnu og frambjóðendum

Opinn fundur með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingar, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00. Með á fundinum verða Arna Lára Jónsdóttir þingmaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi, Svanfríður G. Bergvinsdóttir oddviti Samfylkingar í Ísafjarðarbæ og fleiri frambjóðendur.

Hvað brennur á þér fyrir sveitarstjórnarkosningar? Hvernig gerum við sveitarfélagið þitt betra? Og hvernig styrkjum við samvinnu ríkis og sveitarfélaga?

Opið samtal með forsætisráðherra og frambjóðendum. Kaffi og kruðerí.

Sjáumst á Ísafirði!