Kaffisamsæti fyrir eldri borgara á Akureyri

Samfylkingin á Akureyri býður til kaffisamsætis fyrir eldri borgara í sal Birtu, Bugðusíðu 1, sunnudaginn 10. maí klukkan 15:00
Frambjóðendur Samfylkingarinnar mæta, boðið verður upp á kaffi og kruðerí og lifandi tónlist í flutningi Guðrúnar Arngrímsdóttur og Sigurðar Óla Guðmundssonar. Fyrsti þingmaður kjördæmisins, Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra verður svo með okkur.
Hittumst heil og eigum góða stund saman!