Melabraut 30

Kosningakaffi á Seltjarnarnesi

Framboð Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra hlakkar til að taka á móti bæjarbúum í heitt kaffi og ljúffengt kruðerí á sjálfan kjördaginn!

Við verðum með opið hús laugardaginn 16. maí milli kl. 13:00 og 16:00 að Melabraut 30. Þetta er kjörinn staður til að koma saman, spjalla og njóta samveru á þessum spennandi degi.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest, verið hjartanlega velkomin!