Ljóð og lopi

Akureyringurinn og þingmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson kemur í heimsókn til okkar á miðvikudaginn. Sigmundur Ernir var alþingismaður Norðausturkjördæmis árin frá 2009 til 2013 og hefur setið á þingi sem þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður síðan 2024.
Sigmundur Ernir er Akureyringum að góðu kunnugur, ekki síst fyrir skrif sín, en hann hefur gefið út fjölda bóka; skrifað ævisögur og endurminningar og ljóðabækur.
Við ætlum að eiga notalega baðstofustund í kosningamiðstöðinni þar sem tilvalið er að koma með handavinnuna með sér og hlusta á ljóðalestur. Hægt verður að fá bómullargarn á staðnum sem er tilvalið í tuskuprjón.