Egilsbraut 9, Ölfusi

Málefni eldra fólks í Ölfusi

Málefni eldra fólks er eitt af forgangsmálum Samfylkingarinnar, bæði á landsvísu og framboðsins í Ölfusi.

Miðvikudaginn 6. maí kl. 18 bjóðum við til opins fundar á 9unni ásamt Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og Bryndísi Gunnlaugsdóttur bæjarstjóraefni okkar.

Á fundinum fer Alma Möller yfir þjóðarátak ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarrýma, áherslur sínar um eflingu lýðheilsu ásamt því að ræða málefni heilsugæslunnar.

Þá ræða frambjóðendur áherslur Samfylkingarinnar og félaga fyrir komandi ár í sveitarfélaginu og bæjarstjóraefni okkar, Bryndís Gunnlaugsdóttir kynnir sig fyrir viðstöddum.

Að lokum verða opnar umræður þar sem við viljum gjarnan heyra ykkar hugleiðingar um málefni eldra fólks.

Boðið verður upp á smørrebrød og úrval drykkja.