Félagsheimilið Seltjarnarnesi

Opið hús í félagsheimilinu

Við opnum dyrnar á Félagsheimilinu á laugardagsmorguninn kl. 9-12. Ykkur bæjarbúum verður boðið að kíkja inn í kaffi, skoða ástandið, rifja upp góðar stundir og ræða framtíðarnýtingu hússins.

Félagsheimilið hefur staðið autt og illa farið í sex ár eftir að framkvæmdir voru stöðvaðar vegna fjárskorts. Innréttingar, klæðningar og salerni hafa verið rifin út og húsið skilið eftir ónothæft. Engin áform eru um opnun á húsinu.

Við hjá Samfylkingu, Viðreisn og óháðum viljum klára verkið, opna húsið að nýju og tryggja að það nýtist bæjarbúum. Með skynsamlegum rekstri getur Félagsheimilið okkar orðið öflug miðstöð menningar og mannlífs í bænum.

Hlökkum til að bjóða ykkur inn í Félagsheimili okkar allra!