Pílufélag Reykjanesbæjar

Pílumót til styrktar Hlýjunnar

Samfylkingin í Reykjanesbæ stendur fyrir góðgerðarpílumóti þann 9. maí í sal Pílufélags Reykjanesbæjar á Ásbrú við Keilisbraut 55. Leikið verður í 501 tvímenningi þar sem vanur og óvanur verða dregnir saman í lið, svo allir geta tekið þátt.

Þátttökugjald er 2.000 krónur á par, 1.000kr hver einstaklingur og renna öll framlög til Hlýjunnar.

Hlýjan er mikilvægt úrræði sem styður við fólk í viðkvæmri stöðu og veitir aðstoð þegar mest á reynir. Starfsemi hennar skiptir raunverulegu máli fyrir samfélagið og því mikilvægt að styðja við svona frábært úrræði. Þeir sem vilja geta lagt enn meira af mörkum með frjálsum framlögum.

Ísköld verðlaun fyrir sigurvegara mótsins fá verðlaun.

Við hvetjum alla til að mæta, taka þátt og njóta góðrar stemningar á meðan við leggjum okkar af mörkum til mikilvægs málefnis. Skráning fer fram í athugasemdum eða á staðnum.

Allir velkomnir