Austurmörk 23, Hveragerði

Prjónakvöld með oddvita S listans

Oddviti S-listans býður öllu handverksfólki hjartanlega velkomið á kosningaskrifstofuna í notalegt prjónakvöld.

Birgitta er sjaldan án prjónanna sinna og finnst fátt skemmtilegra en að sitja í góðum félagsskap, prjóna og spjalla. Það er aldrei að vita nema hún nái að smita fleiri frambjóðendur af listanum með handverksáhuganum og fá þau til að slást í hópinn!

Allt handverk er velkomið – tökum með okkur góða skapið og sköpum notalega stund saman.