Hafnargata 32, Reykjanesbæ

Pubquiz með Magga og Halla

Miðvikudagskvöldið 13. maí breytist kosningamiðstöð Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í pub quiz veizlu þar sem þeir Maggi Tóka og Halli taka við sem stemningsstjórar kvöldsins.

Fljótandi veigar, góð tónlist og geggjuð stemmning allan tímann. Taktu með þér 2–4 manna lið og reyndu á þekkinguna í alls konar fróðleik milli himins og jarðar

Byrjaðu hvítasunnufríið á besta staðnum og hver veit nema heppnin verði með þér!

Veglegir vinningar í boði fyrir liðið í 1. sæti.

Öll velkomin.