Stillholt 16-18, Akranesi

Ræðum um leikskólamálin

Samfylkingin á Akranesi boðar til opins fundar um nýtt útspil Samfylkingarinnar og leikskólamálin miðvikudaginn 6. maí kl. 20:00 í Stillholti 16-18.

Eydís og Sigmundur Ernir þingmenn Samfylkingarinnar fara yfir nýtt útspil flokksins og Sara Margrét Ólafsdóttir dósent í menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fjallar um menntun leikskólakennara.

Kaffi á könnunni