Reykhólar: Súpufundur með Kristrúnu og frambjóðendum

Opinn fundur með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingar, í kosningamiðstöð Samfylkingar í húsnæði Báta- og hlunnindasýningarinnar á Reykhólum, fimmtudaginn 7. maí kl. 13:30. Með á fundinum verða Arna Lára Jónsdóttir þingmaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi, Hrefna Jónsdóttir oddviti Samfylkingar í Reykhólahreppi og fleiri frambjóðendur.
Hvað brennur á þér fyrir sveitarstjórnarkosningar? Hvernig gerum við sveitarfélagið þitt betra? Og hvernig styrkjum við samvinnu ríkis og sveitarfélaga?
Opið samtal með forsætisráðherra og frambjóðendum. Súpa í boði og heitt á könnunni. Í lok fundar munu Þorleifur Guðjónsson og Valdimar Flygenring flytja ljúfa tóna.
Sjáumst á Reykhólum!