Skagaströnd: Morgunkaffi með Kristrúnu og frambjóðendum

Opinn fundur með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingar, á Harbour við Vesturgarð á Skagaströnd, fimmtudaginn 7. maí kl. 8:30. Með á fundinum verða Arna Lára Jónsdóttir þingmaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir oddviti Samfylkingar og óháðra á Skagaströnd ásamt fleirum frambjóðendum.
Hvað brennur á þér fyrir sveitarstjórnarkosningar? Hvernig gerum við sveitarfélagið þitt betra? Og hvernig styrkjum við samvinnu ríkis og sveitarfélaga?
Opið samtal í morgunsárið með forsætisráðherra og frambjóðendum. Heitt á könnunni.
Sjáumst á Skagaströnd!