Skipulagsrölt og súpa

Frambjóðendur Samfylkingarinnar bjóða í stutta göngu um Hafnargötuna og Grófina og spjall um hvernig við mótum saman enn betri bæ. Fáum okkur gómsæta súpu í kosningamiðstöðinni að göngu lokinni
Farið verður yfir helstu verkefnin framundan, hvað leggja þurfi áherslu á við komandi endurskoðun aðalskipulags Reykjanesbæjar og rætt hvernig við viljum byggja bæinn okkar til framtíðar
Gangan hefst kl. 17 frá kosningamiðstöðinni við Hafnargötu 32 (Gallerí Keflavík), gert er ráð fyrir að hún taki rúma klst. og súpan verði klár kl. 18:15.
Öll velkomin í röltið - og/eða í súpuna.