Skvísubúbblur

Er ekki kominn tími á smá bubblur og spjall?
Við á S-listanum í Hveragerði ætlum að opna dyrnar, hella í glös og taka vel á móti ykkur
Föstudaginn 8. maí frá kl. 20:00, Austurmörk 23
Það verða búbblur, léttar veitingar og nóg af spjalli – hvort sem þú mætir til að hitta vinkonur, kynnast nýjum eða bara til að fá þér eitt glas (eða tvö ).
Við verðum líka með fataskiptislá, svo ef þú átt flík sem mætti fá nýtt heimili, taktu hana með eða finndu þér nýja flík!
Skvísur á öllum aldri eru hjartanlega velkomnar!
Taktu með þér skvísu og mættu!